Alley Works

Persónuverndarstefna

Gildir fyrir vefinn alley.is.

Hver ber ábyrgð

Vilbert ehf., kt. 640706-0740, sem rekur Alley Works, ber ábyrgð á vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem safnað er á þessari vefsíðu. Fyrirspurnir um persónuvernd má senda í gegnum samskiptaformið á forsíðunni.

Hvaða upplýsingum við söfnum

Þegar þú sendir fyrirspurn í gegnum samskiptaformið söfnum við nafni, nafni fyrirtækis ef þú gefur það upp, netfangi og/eða símanúmeri og þeim skilaboðum sem þú skrifar. Ef þú kemur úr reiknivél fylgir samantekt á þeim tölum sem þú slóst inn, svo samtalið geti byrjað á réttum stað.

Reiknivélarnar sjálfar reikna í vafranum þínum. Það sem þú slærð þar inn er hvorki vistað né sent neitt fyrr en þú sendir fyrirspurn og samþykkir að við höfum samband.

Til hvers

Við notum upplýsingarnar eingöngu til að svara fyrirspurninni og fylgja henni eftir. Lagagrundvöllur vinnslunnar er samþykki þitt, sem þú veitir með því að haka við áður en þú sendir, og eftir atvikum nauðsynlegar ráðstafanir áður en samningur er gerður.

Hvert upplýsingarnar fara

Fyrirspurnir berast í sölu- og samskiptakerfi okkar og sem tölvupóstur til þess sem svarar þeim. Vefsíðan er hýst hjá Vercel. Þessir þjónustuaðilar vinna gögnin fyrir okkar hönd á grundvelli vinnslusamninga. Upplýsingar eru ekki seldar eða afhentar þriðja aðila í markaðsskyni.

Hve lengi

Fyrirspurnir sem ekki leiða til viðskipta eru varðveittar á meðan þörf er á til að svara þeim og fylgja þeim eftir, og þeim síðan eytt. Gögn sem tengjast verkefnum sem unnin eru fyrir þig eru varðveitt í samræmi við bókhaldslög.

Vefkökur

Síðan notar engar greiningar- eða markaðsvefkökur. Þess vegna er enginn vefkökuborði. Verði þessu breytt verður stefnan uppfærð og samþykkis leitað áður en slíkar vefkökur eru settar.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá aðgang að þeim upplýsingum sem við geymum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, og að afturkalla samþykki þitt hvenær sem er með því að hafa samband við okkur. Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).

← Til baka á forsíðu