Vélatímar sem höfðu verið unnir en aldrei skráðir voru fundnir, færðir rétt til bókar og gerðir reikningshæfir.
We find a way or make one.
Við leysum vandamál og sköpum virði.
Við hjálpum fyrirtækjum að stöðva tekju- og kostnaðarleka, auka sölu og takast á við áskoranir. Við skiljum stöðuna, finnum leiðir og tökum þátt í framkvæmdinni.
- Fyrir eigendur og stjórnendur fyrirtækja
- Rekstrarskilningur og útsjónarsemi
- Frá greiningu til framkvæmdar
Er tekjuleki hjá þér?
Fylltu út reitina þrjá og niðurstaðan birtist strax. Reiknað í vafranum þínum, ekkert sent og ekkert netfang.
Við finnum leið eða sköpum hana.
Fjórir ólíkir kettir, einn hópur. Þannig vinnum við líka: með ólíka reynslu, sama markmið og trú á að leiðin finnist.

Hvar getum við hjálpað?
Tekjur og fjármunir geta tapast án þess að það sjáist strax. Við hjálpum þér að finna hvar og hvers vegna.
- Óskráðir tímar og vélatímar
- Viðbótarverk sem ekki eru reikningsfærð
- Einingar sem týnast milli verkskráningar og reiknings
- Efnisrýrnun og efni sem skilar sér ekki í verk
- Innkaup án samanburðar og samninga
- Tvíverknaður milli fólks, deilda eða kerfa
- Skýr tilboð sem sýna viðskiptavininum ávinninginn
- Leiðin frá fyrstu fyrirspurn að samningi
- Eftirfylgni sem gleymist ekki
- Ósamræmi í fjárhagsupplýsingum
- Rekstraráfall sem kallar á samræmd viðbrögð
- Ákvarðanir sem þola ekki bið
Við finnum leið eða sköpum hana.
Greiningin þarf að nýtast. Við hjálpum þér að breyta niðurstöðum í aðgerðir. Við hlustum á stöðuna, segjum hreint út hvað við sjáum og veljum næstu skref með þér.
Skoðum gögn, vinnulag og það sem raunverulega er að gerast.
Metum valkosti og veljum næstu skref með þér.
Bætum ferla, byggjum verkfæri og fylgjum breytingunum eftir.
Svona lítur þetta út í raun
Verkefni sem við höfum unnið, lýst í stuttu máli. Nöfn, fjárhæðir og trúnaðarupplýsingar eru ekki birt.
Ábending um ósamræmi í virðisaukaskattsskýrslu leiddi til þess að greiðslufjárhæð var leiðrétt verulega. Leiðrétting af þessu tagi er einstök og ekki varanlegur sparnaður.
Vefsíða smíðuð fyrir þjónustufyrirtæki með sex reiknivélum sem gefa viðskiptavinum verðhugmynd strax og auðvelda þeim að senda fyrirspurn.
Samskipti og næstu skref samræmd eftir óvænt atvik í rekstri, meðal annars við eiganda, tryggingafélag, fjármögnunaraðila og þjónustuaðila.

Rekstrarskilningur. Útsjónarsemi. Framkvæmd.
Alley Works er rekið af Vilbert Gústafssyni. Bakgrunnurinn nær til fjármála, endurskipulagningar, verkefnastýringar og fjölbreytts rekstrar, meðal annars verktakarekstrar. Þar lærist að munurinn á því sem er skráð og því sem raunverulega gerist ræður oft afkomunni.
Við vinnum með eigendum og stjórnendum. Við hlustum á stöðuna, segjum hreint út hvað við sjáum og veljum næstu skref með þér. Þegar kerfi, sjálfvirkni, gervigreind eða stafræn verkfæri hjálpa, byggjum við þau.
Ræðum stöðuna
Fyrsta samtalið er stutt og óskuldbindandi. Þú lýsir stöðunni, við segjum hreint út hvort og hvernig við getum hjálpað. Sendu okkur línu og við höfum samband.
- ✓Þú þarft ekki að hafa tölurnar tilbúnar
- ✓Við segjum líka til ef verkefnið á ekki heima hjá okkur
- ✓Sendu okkur línu og við höfum samband